dagar
mið. 11. febrúar 2026 í Skandinavíu í góðum fíling ...
6 dagar í heimkomu
Tilkyninngaskyldan
sun., 17. ágúst, 2003
Komin heim!!!!!!!!!
mar er bara kominn heim til íslands aftur ... þið getið nú bara tekið gleði ykkar á ný ;) hægt er að hafa samband við okkur símleiðis í gömlu númerin okkar ... takk fyrir samfylgnina í gegnum síðuna okkar á meðan úglandaferðin stóð!!! framhald þessarar síðu er enn óráðin ... e-r uppástungur??? skrifa í comment!! (fleiri myndir munu nú birtast hérna, en það var ferlega gaman í köben)
fórum í verslunarmiðstöð í dag, bara að skoða, ekkert að kaupa, hún var svolítið spes en mjög flott ... við sóttum svo gestgjafa okkar í vinnuna og svo fórum við með helga í veiði!! við keyrðum í ca. 40 mín, aðeins út í sveit og inn í e-n fjörðinn ... strax í fyrsta kasti festi helge spúninn okkar og við reyndum lengi að ná honum en án árangurs svo við brugðum á það ráð að láta helge kafa á eftir honum en það dugði ekki til því hann var mun dýpra ofan í en við héldum (ca. 3 metra skv. helge) ... strax í næsta kasti var helge "að fá'ann", lítill makríll, en þorskurinn liggur víst e-ð dýpra ... næstu köst voru reyndar ekki öll jafn gjöful en það var mikið nartað í öngulinn en undir lokin voru þó komnir 5 fiskar, 4 makrílar og 1 óþekktur (ef e-r þekkir hvaða tegund þessi efsti á myndinni er má hinn sami endilega láta okkur vita, kjötið á honum var hvítt), ægir veiddi einn makríl, helgi rest ... það voru þarna litlar flugur, aðeins smærri en mýflugur sem voru í hundraðatali og létu okkur ekki í friði, lágu á okkur eins og við værum mykjuskán og stungu okkur í gríð og erg, enda lítum við út eins og við séum með hlaupabóluna (grín- og ýkjulaust) ... bitin sjálf eru þó ekki eins slæm og fjandans moskítóbitin sem við fengum í barcelona ... þegar við komum heim með allan matinn tók dóra sig til og flakaði fiskinn enda þrælvön frá því hún vann í hraðfrystihúsinu í hnífsdal (hinir fylgdust með fullir aðdáunar af glæsilegum tilþrifum hennar!) ... núna liggja flökin marineruð í ískápnum og bíða grillsins á morgun, en klukkan var orðin of margt til að elda þá þegar við komum heim ... mmmm, grillaður fiskur á morgun ;)
jæja, erum of þreytt núna til að setja inn myndir úr ferðinni en ætlum að gera það kannski á morgun ... þá verðið þið líka að fara að skrifa í commentin!! ha! ætlið þið ekki að gera það?? ef ekki þá setjum við engar myndir ;) þið verðið að minnsta kosti að kvitta í gestó :D
fórum út á bát aftur í dag með guðfinnu og helge, ætluðum að vakna snemma en fórum þó ekki út fyrr en rétt fyrir hádegi ... það var frábært veður, heiðskýrt og mikill hiti ... tókum með okkur nesti, ýmislegt snakk og sérstaklega ber að nefna rækjur, brauð og mæjó og hvítvín ... það er hefð fyrir því hér að setja fullt af rækjum á brauð og smyrja svo mæjó yfir ... við sigdum á spegilsléttum sjónum út fjörðinn og meðfram honum og á milli eyja í tugatali og það var frábær sjón að sjá ... mikið er af húsum við vatnið og fólk með bryggjur og sjóskýli fyrir framan húsin sín alls staðar í fjörðunum ... norðmenn eru í 2. sæti á eftir frökkum í svona bátaeign í evrópu ... við stoppuðum fyrir framan eina eyjuna og fengum okkur snæðinginn og svo stungu ægir og helgi sér í sjóinn (sem er um 18° núna) ... einnig kíktum við til samstarfskonu guðfinnu sem var að kaupa sér land hér og er að byggja, það er reyndar talsvert langt frá því sem við lögðum af stað frá enda tók ferðin rúma 10 klukkutíma í það heila ... alls staðar sem við fórum hér í dag er búið að vera frábært útsýni - þvílík náttúrufegurð!! ætlum að kaupa okkur sumarhús hér í norge í einhverjum firðinum þegar við verðum stór ;) kaupa bát líka!!
þegar við komum heim um 7 leytið fengum við okkur að borða með guffu og helga ... eftir matinn fórum við fjögur svo á siglingu um fjörðinn hér við bergen, sem var algjör snilld!! erum líka með video af því en það er um 19 MB þannig að það tekur nokkrar mín að downloada því (hægri smella og velja save target as)
stutt yfirlit yfir síðustu daga: lögðum af stað frá bcn í gær kl. 15 og komum til brussel um hálf fimm og biðum svo þar í 4 tíma og lentum loks í køben um 10 ... núna erum við í bergen, lentum um kl. 12 og erum búin að skoða miðbæinn aðeins með helge (eiginmanni guffu systur) ...
við erum búin að gera ýmislegt síðustu dagana, t.d. eyddum við síðasta deginum (mánudag) á spáni í water world vatnsrennibrautagarðinum, það var svaka gaman, með okkur fóru ívar og eyrún ásamt pálu systur ívars og fjölskyldu hennar ...
það er líka rosa gaman að vera kominn í nýtt umhverfi og að hitta fjölskylduna ... auður tók vel á móti okkur og leyfði okkur að geyma farangurinn hjá sér meðan við erum hér í bergen ... guðfinna og helge ætla að lána okkur bílinn sinn hér svo við getum skoðað okkur um, en þau eru að vinna á daginn ... myndir koma inn síðar ;)
næstu dagar eru einnig alveg planaðir sko, förum og skilum módeminu á morgun (til auna) auk þess að liggja í sólinni eins og tinni, föstudagurinn fer í humarhátið í cdf (systir ívars kom með 4 kg. af humri), á laugardeginum förum við kannski til sitges (hommabæinn), sunnudagur fer í söfn (ókeypis fyrsta sunnudag í mánuði), mánudagur verður svona uppfyllingardagur og tiltekt (síðasti heili dagurinn okkar, förum á þri) en vonandi förum við þá í waterworld sem er vatnsrennibrautagarður hér rétt hjá og er ótrúlega spennandi ...
jæja, gerum ráð fyrir að þurfa að skila inn módeminu á morgun, þannig að eftir morgundaginn fer aðeins að hægjast á uppfærslum á síðunni ... við ætlum nú samt að reyna að vera dugleg að setja inn í færslur og myndir frá "útlöndunum" (s.s. norge dk) ...
í dag ákváðum við að gerast ákaflega þjóðleg - það er á spænska vísu ... já, það er skömm frá því að segja, eftir tæplega 7 mánaða dvöl í barcelona, að við höfum aldrei útbúið sangríu ... úr þessu bættum við, skelltum okkur í lidl (svipað og bónus) og keyptum ódýrt hráefni í hana. Ótrúlegt en allt þetta kostaði aðeins 1800 kall ... lítur sangrían okkar ekki vel út? (skrifið í comment!!! - eiginlega gerði ægir hana alla) í kvöld ætlum við svo að fá okkur gesti til að drekka hana með okkur: ívar, eyrúnu, pálu (systur íbba) og kidda (mann pálu) ... salut amigos, hasta pronto
brúðkaup ársins verður í dag! linda systir og beggó eru að fara að gifta sig og við missum af því :( við verðum með ykkur í anda ... vonandi verðið þið jafn heppin með veður og við, hér er heiðskírt og 33° hehe ... hugsum til ykkar á ströndinni :) eigið góðan dag!
vinur okkar á skemmtaranum vakti okkur aftur í morgun (eins og svoooo marga aðra laugardagsmorgna) ... hann gengur á milli blokka með hljómborð, magnara, míkrofón og hátalara á einhverri trollu og syngur arabísk/spænska tónlist með sinni undurfögru rödd svo hátt að það glymur í öllu hverfinu ... svo gengur konan hans um með bauk til að safna í, í þeirri von að einhver kasti til þeirra pening út um gluggann ... þið fáið að heyra sýnishorn bráðlega, mikko og hannele tóku með sér video-klippsið en ætla að senda okkur í pósti fljótlega ... þetta eru BARA snillingar!!!
fórum að versla áðan í carrefour (uppáhalds búðinni okkar) og í miðri verslunarferð áttuðum við okkur á því að við vorum bara búin að kaupa okkur vökva! 30 lítrar takk fyrir, en við ætlum ekki að segja hversu mikið af því var áfengt, það er leyndó ;) ákváðum samt að kaupa okkur 2 pizzur (það fylgdi nebbla 2 l. kók með) gátum ekki borið þetta allt heim þannig að við tókum með innkaupakerruna og hún er núna inni á gangi hjá okkur ... fyrir utan stigaganginn okkar liggja ca. 10 kerrur núna, en þetta er víst ekki vinsælt að skilja svona eftir (við eigum enga af þeim), en hvað getur maður svo sem annað gert en að haga sér eins og hinir ... (okkar er á leiðinni í safnið ... hehe)
fórum aftur á ströndina í dag í cdf, það var engin sól þegar við fórum síðast og núna erum við kafrjóð í framan ... á morgun ætlum við aftur, og á sunnudaginn og mánudaginn og þriðjudaginn og ... við ætlum að vera brúnust þegar við komum heim, ha-ha-ha-haha!!
vorum að koma af ströndinni í cdf, lítið annað gert þessa dagana, enda leitum við að e-u ódýru að gera þar sem aurauppsprettan vel farin að þerrast ... erum að spá í að kíkja á djass festival í garðinum park siutadella í kvöld (ekki alveg ákveðið samt) ... inga og krakkarnir eru að fara heim á morgun og þá kemur nýr fjölskyldupakki til þeirra ívars og eyrúnar, pála systir hans og fjölskyldan hennar ... nóg að gera á þeim bænum
Fyrir ykkur sem saknið okkar alveg rosalega mikið settum við svona dagateljara, sem telur niður dagana þar til við komum heim!!! JIBBÍÍÍÍ!! (ásmt dögunum þar til við förum til Skandinavíu -> köben & bergen) í dag eigum við bara eftir 2 vikur í barcelona, það er alveg skerí stutt ... VERIÐ DUGLEG AÐ SKRIFA Í COMMENTIN - það gerir lífið svo miklu skemmtilegra ;)
jæja, loxins komin heim ... fórum á föstudaginn á ströndina í cdf (casteldefells) hjá íbba og eyrúnu ... inga systir ívars er í heimsókn með 3 litla grislinga, 2 eru hennar og einn er dóttir 3. systur þeirra. við buðumst til að passa krakkana svo þau gætu skroppið út að borða í barce. þau komu heim eftir að síðasta lestin til baka var farin þannig að við gistum .. ferðin ílengdist aðeins og þetta varð að helgarpakka, enda vorum við að koma heim núna.
Íbúðin þeirra er helmingi stærri en okkar og með 2 aukaherbergjum, hún er við ströndina, stórar svalir, með bílskíli, sundlaug og tennisvelli. Við erum að leigja eina litla herbergiskytru og deilum restinni með 3-4 öðrum. samt erum við að borga nákvæmlega helmingi minna en þau í leigu á mánuði!! skítt.
Þetta er búið að vera fín helgi og í kvöld ætlum við að fara að skoða magic fountain með öllu liðinu ...
Vorum að frétta það frá Christophe og Aurelie (meðleigendum okkar) að við séum komin með risastóra KAKKALAKKA í íbúðina!!! (ætli þeir hafi ekki komið með iðnaðarmönnunum :S
Í gærmorgun mættu vinnumennirnir
stundvíslega kl. 9 og hófust handa við að
brjóta niður veggi
og hlaða nýja. Það var ekki hægt að vera heima hjá sér á meðan á þessu stóð svo við ákváðum að kíkja bara á ströndina. Núna í morgun gerðu þessir enn betur og mættu kl. 7:30, beint fyrir framan gluggan hjá okkur!! Við erum að ærast af látum svo við ætlum að drífa okkur út ... ætli við endum ekki bara aftur á ströndinni ;)
Á miðvikudaginn í síðustu viku fórum við niður á Placa Catalonyu torg með Ívari og Eyrúnu að sötra bjór og spjalla. Seinna um kvöldið fórum við svo í eitthvað tjald uppi á Diagonal því þar átti að vera e-r svaka bjórkynning sem var svo ekkert spes. Það er svo sem í lagi því það er hægt að fá þessa dagana bjór á ótrúlega ódýru verði og frá öllum heimshornum í El Corte Inglés og notfærðum við okkur það því óspart ... Jæja, allt gott og blessað með það, þegar við komum svo heim kl. hálf tvö um nóttina lá miði á borðinu til okkar frá leigusölunum okkar: "Í fyrramálið kl. 9 koma iðnaðarmenn til ykkar í íbúðina til að brjóta niður vegginn í herberginu ykkar, svo þið verðið að færa ykkur yfir í herbergið þeirra Mikkó og Hannele [Finnarnir sem leigðu með okkur - fóru fyrir viku]". Því var ekkert annað hægt en að hefjast handa við að flytja allt draslið kl. að ganga 3 um nóttina (Ívar og Eyrún komu nefnilega í smá stund með okkur heim). Það hefði nú verið lágmarks kurteisi að láta vita með a.m.k. dags fyrirvara ...
Allt gott að frétta af okkur hér ...
Ákváðum að gera smávægilegar breytingar á síðunni. Þar sem við erum búin að vera svo löt að skrifa dagbókarfærslur ákváðum við að gera frekar svona stutt "blaður" (blogg) þar sem það er auðveldara og ekki eins tímafrekt.
Vonandi verður þetta til þess að síðan haldist aðeins líflegri!!! Endilega segið okkur hvað ykkur finnst um þetta, t.d. ef þið saknið teiknimyndanna .. hehe (smella á "comment" hér fyrir neðan)