9.desember


Váá... hvað heimasíðan er orðin flott. Ægir er búinn að vera voða duglegur að vinna í henni og ég kem með komment við og við til að fá að ráða einhverju.


Þessi síða verður vonandi reglulega uppfærð þegar við komum út. Hér eiga vinir og vandamenn að geta nálgast myndir og smá svona krassandi ferðasögur.


Smá svona yfirlit yfir efni síðunnar


Svona til að byrja með verður síðan helst til að hjálpa okkur við leit að herbergi. Við erum búin að vera í sambandi við þó nokkra aðila en ekkert tekið neinar stórar ákvarðanir enn þá.


Bráðlega, líklega núna um jólin þá má skoða dagbókarfærslur með því að smella á dagatalið sem Ægir var svo flinkur að gera svona fínt. Þeir dagar sem dagbókarfærslur eru á eru umluktir appelsínugulum kassa.


Um jólin getum við vonandi líka sett inn einhverjar myndir. Það vill svo heppilega til að digital myndavélin klikkaði eitthvað svo ég þarf að fara að láta líta á hana. Hún er enn í ábyrgð svo það verður vonandi ekkert svaðalegt.


Anyway, þá mun hér vonandi verða fullt af skemmtilegu efni.


Jæja, þetta var fyrsta dagbókarfærslan af vonandi mörgum.