Við viljum byrja á að biðja dygga lesendur þessarar heimasíðu okkar afsökunar á því að ekki hafa komið inn færslur á vefinn s.l. 1 og hálfa viku. Ástæðan er aðallega sú að við höfum ekki haft nægilega góða tækniaðstöðu til þess eftir að við fluttum.
Stutt yfirlit yfir liðna daga helgarinnar
Við höfum nú tekið nokkrar myndir úr liðinni viku og þær eru nú komnar inn, á fimmtudaginn vorum við með smá partý og á föstudaginn var smá innflutningsboð, en þá var ekkert áfengi á boðstólum.
Þetta var að öðru leiti hinn mesti rólyndisdagur, vöknuðum heldur seint eftir boðið kvöldið áður, dóluðum okkur dágóða stund í súpermarkaðinum í leit að réttum hráefnum fyrir hina hefðbundnu laugardagspizzu (að hætti Sólveigar og Gunnars) og buðum hinu heimilisfólkinu að vera með.
Bjórsmökkun
Eftir matinn héldum við smá vínsmökkun, eða öllu heldur bjórsmökkun, en í boði voru 6 bjórtegundir: Forsters, Budvar, Stella, Heiniken, Corrona (Coronita á spænsku) og Carrefour sem er samnefndur súpermarkaðinum sem við verslum í. Allar þessar tegundir (að undanskildri þeirri síðastnefndu og hugsanlega Stellu) ættu að vera Íslendingum vel kunnar.
|
|
| Frá vinstri: Carrefour, Stella, Corona, Budvar, Forsters og Heiniken |
|
Þetta var meira en bara bjórsmökkun því þetta var í leiðinni keppni á milli tveggja liða: Dóra og Ægir Vs. Mikko og Hannele (finnska parið sem býr með okkur). Leikurinn gekk út á að þekkja drykkinn og geta sagt um hver hann væri. Að auki átti hvort lið um sig að gera stutta greiningu á hverjum bjór og velja þann besta og þann versta að sínu mati.
Ég held að við þurfum að komast í nokkuð betri æfingu ef við ætlum að taka þátt í fleiri keppnum af þessu tagi! (Og það verður gert!) Hvorugt liðið gat státað af sigri því bæði töpuðu á vandræðalegan hátt. Hvorugt lið gat svo mikið sem þekkt 1 bjór af þessum sex!! (reyndar höfðum við Dóra vitneskju um að ein bjórtegundin hafði ekki verið geymd í kæli svo við gátum sagt okkur volgi bjórinn væri Heiniken en það var ekki tekið gilt).
Nú dugir ekkert annað en þjálfun og meiri þjálfun þó ekki sé enn búið að ákveða hvenær leikið verður til úrslita.
Niðurstöður leiksins:
Hvert bjórglas hafði sitt númer og svo var það bara að tengja númerið við réttu tegundina ...
| |
|
|
|
|
| |
Nr. |
Rétt röð |
Ægir & Dóra |
Mikko & Hannele |
| |
1 |
Forsters |
Carrefour |
Carrefour |
| |
2 |
Heiniken |
Heiniken |
Stella |
| |
3 |
Stella |
Budvar |
Corrona |
| |
4 |
Carrefour |
Corona |
Heiniken |
| |
5 |
Budvar |
Stella |
Forsters |
| |
6 |
Corrona |
Forsters |
Budvar |
|
|
|
|
|
| |
|
|
| Keppendur |
Besti |
Versti |
| Dóra |
Stella |
Forsters |
| Ægir |
Stella |
Forsters |
| Hannele |
Heiniken |
Stella |
| Mikko |
Heiniken |
Budvar |
| |
|
|
Úr þessu varð nú ekkert fyllerí, enda nokkrir enn að jafna sig eftir fimmtudagskvöldið, svo við hofðum ákveðið að taka það bara rólega og leigja okkur DVD sem við og gerðum fram til klukkan 3 og svo hófst Formúlan um 4. Við létum bara Mikko eftir að horfa á hana og fórum að sofa milli 3 og 4.