(Lunes) Mánudagurinn, 5. maí 2003


Í dag vorum við rosa menningarleg og fórum á súkkulaðisafnið. Þar tókum við fullt af myndum og höfum við sett þær flestar á netið. Þetta safn er ekki stórt en þar er að finna fullt af flottum súkkulaðiskúlptúrum svo sem Sagrada Familia, Plaza Espana og Harry Potter. Það voru einhverjir krakkar í skólaferð á safninu á sama tíma og þau fengu að búa til sína eigin skúlptúra en ekki við . Eins og við var að búast vorum við mjög svöng í súkkulaði eftir skoðunarferðina og keyptum okkur því smá til að smakka mmmmm....

Eftir smá súkkulaðiát gengum við um gamla hverfið (Barrio Gothico) og skönnuðum hverja einustu skóbúð en Öskubuskan fann ekki skóna sem pössuðu. Þetta er orðið rosalegt skóhallæri, daman þrammar enn á gömlu útgengnu strigaskónum hennar Grétu, sem hún fékk gefins fyrir 5 mánuðum, því Gréta var hætt að fíla þá.

Við fórum þó ekki tómhent heim því við enduðum í bókabúð og keyptum okkur skáldsögur (á spænsku) til að lesa næst þegar við förum í sólbað.

Nú tekur svo við eintóm harka því á morgun erum við að fara í próf, allir líkamspartar takk fyrir.