(Domingo) Sunnudagurinn, 4. mayo 2003
Í dag var stór dagur í lífi Finnana sem við búum með: Formúludagur. Það dugði ekkert minna til heldur en að mæta á brautina klukkan 7 um morguninn til að fá gott sæti (keppnin byrjaði klukkan 2).
Til að hafa þetta allt saman á hreinu þá fóru Finnarnir (með nöfnin sem við munum ekki) í gær og í stað þeirra komu tveir aðrir (systir hans Mikko og vinkona hennar).
Merktir finnskum fánum frá toppi til táar vonuðust þeir til að landi þeirra Räikkönen myndi standa sig betur en í tímatökunum (þar sem hann fór útaf), en viti menn...kallinn klessti aftan á Jaguar þegar mjög fáar mínútur voru liðnar af keppninni. Räikkönen má þó eiga það að þetta var ekki hans sök. Ótrúleg vonbrigði...
Við komumst þó ekki á Formúluna þar sem miðarnir voru of dýrir, kannski seinna. Í staðinn horfðum við á keppnina í sjónvarpinu og lásum okkur til um reglurnar og bílana á netinu á meðan. Formúludagurinn mikli. Við þykjumst líka vera Ferrari-Schumacher áhangendur svo við vorum mjög ánægð með úrslitin.