28. janúar 2003
|
Við fórum og hittum par á Kaffibrennslunni, Sverri og Beggu, sem eru búin að vera í Barcelona s.l. 3-4 mánuði að gera nákvæmlega það sem við erum að fara að gera. Mér var bent á heimasíðuna þeirra af tilviljun. Þar héldu þau ferðadagbók með myndum og sögum úr ferðinni – mjög áhugavert, sérstaklega fyrir okkur. Við settum okkur í samband við þau og þau buðust til að hitta okkur yfir kaffibolla og spjalla og vera ráðgjafar okkar í eina kvöldstund. Þetta var mjög skemmtilegt og jók aðeins á spenninginn - og kannski ekki á hann bætandi ;). Tilhlökkunin breyttist svolítið þetta kvöld, þau veittu svona nýja sýn á borgina og gerðu þetta svolítið raunverulegra fyrir okkur. Ég gæti trúað að við eigum eftir að upplifa þessa ferð á svolítið svipaðan hátt og þau, allavega líkara því en hjá öðrum sem við höfum rætt við sem hafa farið þangað einir eða í stærri eða minni vinahópum, því maður nálgast hlutina öðruvísi með maka. Þau reyndu að búa okkur undir smá menningarsjokk, þarna væri mannlífið litríkara en hér - inni í öllu mannhafinu í Barcelona finndust neflausir og limalausir betlarar, rænandi sígunar, arabar og spánverjar, fólk sem reynir að plata af manni peninga, dópsalar, rónar sem fitla við sig á Metro stöðvum (karlar og konur), fólk sem keyrir á gamlar konur og hlær og annað fólk með siðferði á misháu plani. Þau sögðu okkur líka fullt af skemmtilegum ferðasögum og mörgum þeirra segja þau frá á heimasíðunni sinni: www.jolajeppi.com. Þau gáfu okkur góð ráð með matarinnkaup, klúbba, skemmtigarða með uppákomur, bíó með myndum sem eru ekki "döbbaðar", leiguhúsnæði o.fl. Svo gáfu þau okkur kort í Metro-inn sem þau náðu ekki að fullnýta. Sitt hvort fleira en Barcelona áttum við sameiginlegt, t.a.m er Begga hálf norsk (en Dóra er einmitt ¼ norsk fyrir þá sem ekki vita). Þetta var allavega skemmtileg og fróðleg kvöldstund og og við hlökkum mikið til að fara |