(Jueves) Fimmtudagurinn, 24. abril 2003


"Er einhver þarna úti?!... Nennir enginn að tala við mig?"
Dóra litla var búin að leggja mikið á sig til að kaupa headset til að geta talað við fjölskylduna sína heima. Það voru páskar og allar búðir lokaðar og loksins þegar þriðjudagurinn langþráði rann upp var það fyrsta sem hún hugsaði þegar hún vaknaði að fara út í Gran Via 2 að kaupa headset - tveggja daga bið var á enda!

Hún fór búð úr búð og bar saman verð og gæði þar til hún loksins fann hinn "rétta". Hún flýtti sér heim til að tengjast internetinu og hefja talið, en þegar að því kom að tala þá hafði enginn tíma og Dóra litla varð mjög leið ...