(Lunes) Mánudagurinn, 24. febrúar 2003
Ný vika, vakna snemma, frekar erfitt!! Skólinn í dag var mjög skemmtilegur og við lærðum í hvaða búðir við ættum að fara til að kaupa ýmsar vörur. Fyrir þá sem ekki vita þá er hagkerfið hérna svolítið öðruvísi heldur en á Íslandi. Súpermarkaðirnir eru til dæmis miklu dýrari heldur en "kaupmaðurinn á horninu" og til þess að fá vörur þarf maður að fara í alls kyns búðir (þ.e. ef maður vill fá þær á hagstæðasta verðinu). Svo eru líka hlutir staðsettir á stöðum sem manni hefði ekki dottið í hug að leita, t.d. fær maður frímerki í tóbaksbúðum en ekki í ritfanga- og bókabúðum, frekar undarlegt. Þetta gerir það að verkum að það eru skrilljón tegundir af búðum og þetta vorum við að læra :)
Eftir skóla ákváðum við svo að ganga heim þar sem veðrið var geggjað gott, loksins ekki rigning heldur sól og hiti. Í hvert skipti sem göngum um bæinn reynum við að fara leið sem við höfum ekki farið áður og það endar oft með því að við förum miklu lengri leið en áætlað var. Gangan í dag var reyndar nokkuð einföld þar sem við höfum aldrei gengið heim úr skólanum áður.
Þar sem veðrið var svo gott í dag þá var ákveðið að skella í þvottavél, týpískt að það rigni á morgun, virðist alltaf rigna þegar við hengjum út þvott.
Ægir eyddi miklu hluta af deginum í að klára að setja upp heimasíðu fyrir Isabel. Síðu með myndum af herbergjunum sem hún er að leigja út. Eftir að hann byrjaði á þessu er hann þokkalega búinn að vera gulldrengurinn hennar. Hún er alltaf að tala um síðuna og hvað Ægir sé æðislegur að fórna tíma sínum svona í hana. Þar sem Isabel var svo rosalega hrifin af síðunni okkar endaði síðan hennar með svipuðu útliti (sömu litir und alles). Okkur til mikillar "ánægju" hefur hún líka gert sér grein fyrir því að verðið á herberginu sem við erum að leigja er allt og hátt og lækkaði það um 50 evrur, þ.e. þegar við förum. Alltaf leikur lukkan við okkur, eða svoleiðis. Við kunnum ekki beint við að fara að sækjast eftir þessum 50 evrum þó við hefðum ekkert á móti þeim :)
Við vorum alveg eftir okkur eftir helgina svo við tókum okkur smá eftirmiðdagsblund áður en við fórum að læra. Lærdómurinn var svo nokkuð meiri en við héldum og því vorum við að læra alveg til klukkan 2 um nóttina. Rosalega fínt samt að fá svona heimalærdóm, mikið að mynda setningar og svona sem er einmitt það sem við erum í mestum vandræðum með í daglega lífinu hér.