Laugardagurinn, 22. febrúar 2003
Kæra dagbók (þetta er fyrir Jóakim)
Við vöknuðum seint eftir skrallið á föstudeginum. Okkur var boðið í partý til bekkjarfélaga okkar frá Svíþjóð sem heitir Manne um kvöldið. Hann á heima í gamla hverfinu sem nefnist Barrio Gothico. Við borðuðum kvöldmat og drukkum rauðvín með og smá bjór og röltuðum svo út í Metro.
Við fórum út á Römblunni og þetta var í fyrsta sinn sem við fórum hana á kvöldi til. Þarna er mikið mannlíf á kvöldin um helgar. Það tók sma tíma að finna húsið hans því hann býr í götu sem er svo lítil að hún er ekki merkt inn á kortið - allavega ekki því sem við höfðum undir höndum. Við vorum frekar áttavilt þarna inni gamla hverfinu, göturnar eru þröngar en þó fullar af fólki og mikið er af litlum pöbbum þar sem "local" fólkið (fólkið í hverfinu) situr við drykkju og talar hátt. Við fórum inn á einn slíkann til að spyrja til átta og fengum okkur einn lítinn bjór þar saman. Við erum nú orðin frekar sleip í að búa til einfaldar setningar, svo sem til að spyrja okkur til vega, þó við skiljum ekki endilega alltaf svörin sem við fáum til baka. Í þessu tilfelli gátum við klórað okkur út úr handapati og bendingum og fundum loks staðinn.
Húsið er vel falið inni á milli þröngra gatna og íbúðin uppi á 5. hæð (fyrsta hæðin er ekki talin með hér á Spáni). Stigarnir í byggingunum hérna eru líka mjög þröngir og rúma aðeins eina manneskju í hverju þrepi. Alla leiðina upp hafði maður á tilfinningunni að stiginn myndi hrynja undan okkur. Á móti okkur tóku svo Svíar, Marta kærasta Manne-a og vinkona hennar með orðunum "Má ég bjóða þér drykk?" (á íslensku). Þær tvær ásamt Manne og einni í viðbót búa þarna í halfgerðri kommúnu. Íbúðin er mjög stór og með mörgum skotum sem stúkuð eru af með tjöldum til að búa til herbergi. Hver íbúinn á sér vegg sem hann er búinn að skreyta með teikningum, ljóðum og textum, máluðu eða sprautuðu á veggina. Þegar við mættum (um miðnættið) voru margir mættir. Þetta var mjög alþjóðlegt partý og þjóðernishópar höfðu myndast sem héldu sig hver í sínu horni til að byrja með. Í sófunum sátu Spánverjarnir og létu "sígarettuna" ganga sín á milli. Svo það Skandinavarnir sem sátu við borðstofuborðið og hinir héldu sig í skúmaskotum hér og þar. Marta og vinkona hennar bjuggu á Íslandi áður en þær komu hingað og voru að vinna á Shanghai á Laugarveginum. Ekki bauð íslenskan þeirra þó upp á mikið meira en þessi móttökuorð.
Við fórum út um fimm leytið og röltuðum út á Römbluna aftur og tókum þar næturstrætóinn (4n). Við vorum farin að vera smá áhyggjufull um að við værum ekki í réttum strætó þegar hann var kominn á endastöðina og búinn að snúa við og kominn vel áleiðis á upphafsstað þegar við loksins könuðumst við hverfið okkar. Þessi ferð tók okkur tæpan klukkutíma en það er svo sem þess virði þar sem leigubílakostnaðurinn er hár.