Fimmtudagurinn, 20. febrúar 2003


Rigning, rigning, rigning, rigning ... þetta er það helsta sem má segja um síðustu daga. Það er búið að rigna stórum dropum og við Íslendingarnir sem erum vanir að láta bara buna á okkur erum farin að hugsa um að fá okkur regnhlíf. Það á þó að fara að hlýna á morgun og við vonum að það gangi eftir því síðustu daga hefur verið frekar kalt. Eins og við höfum sagt áður er það mikið mál þegar það er kalt því það er ekki hægt að fara inn í hlýjuna heldur er oft miklu kaldara inni. Það er alveg átak að fara undir sængina á kvöldin og undan henni á morgnana.

Dóra er öll að braggast eftir mikil og góð "gufuböð" yfir sjóðandi vatni. Kraftaverkaaðferð. Það virðast þó allir vera að kvefast, a.m.k. ef maður miðar við snítipappírinn í bekknum okkar. Fólk bjóst kannski ekki alveg við að þurfa að dúða sig að fullu fyrst það var komið til Spánar, en það eru víst okkar mistök.

Við erum sem sagt búin að eyða flestum rigningardögunum inni og höfum nýtt tímann í að læra og borðað góðan mat og ekki má gleyma áhorfinu á hið geysispennandi spænska sjónvarp.

Við fréttum að Birgitta Haukdal væri að fara að keppa fyrir okkar hönd í Eurovision. Ekki er samt víst að þýði að senda bara sæta stelpu því gellan sem mun syngja fyrir hönd Spánar er líka rosa pæja + hún kann sko að dilla sér. Hvenær er Eurovision aftur? Við þurfum að komast að því til að horfa á, hehe. Annars var Svíi sem er með okkur í bekk að bjóða okkur í partý á laugardaginn, kannski er það bara Eurovision partý, Svíar eru jú svo miklir Euro-ar.

Annars er óvíst hvernig við eyðum deginum, vonum a.m.k. að það hætti að rigna ...

Hasta luego