Þetta búinn að vera hinn mesti rólyndisdagur. Við fórum seint að sofa í gær og vöknuðum seint í dag. Konan sem leigir okkur íbúðina á dóttur sem heitir Theresa og hún á kærasta sem heitir Miguel. Hún er 22 og hann 26 og þau bjóða sér stundum sjálf hingað í heimsókn, en tilkynna það þó alltaf í sms-i. Til dæmis: "Hæ við ætlum að koma í íbúðina ykkar í dag að ræða um ferðina í sumarbústaðinn. Við komum kl. 17". Fyrir nokkrum vikum var búið að ákveða að skoða þennan möguleika, að fara saman í sumarbústað, þ.e. við, þau, finnska parið, Frakkinn og kærasta hans og e-ð par sem Theresa þekkir. Þessi tímasetning sleit daginn svolítið í sundur fyrir okkur, því við vöknuðum seint og gátum því nýtt hann illa ef þau kæmu svona snemma. Svo við tvö og finnska parið ákváðum að fara í Ikea og hringja bara í hin og seinka fundinum til kl. 19.
|
|
Regla: Ekki gera þetta í Ikea á meðan daman leikur lausum hala! |
|
Ikea er sérstaklega ódýrt hér á Spáni oft meira en helmingi ódýrara en á Íslandi. Okkur vantaði í raun ekkert sérstakt í Ikea, þetta átti upphaflega bara að vera hálfgerð skoðunarferð, en e-n veginn enduðum við á að kaupa tvo stútfulla poka af alls konar drasli, t.a.m. límband, herðatré, fjöltengi, uppþvottabursta, glös o.fl. Þarna var líka matvara frá Svíþjóð. Þar var ekki þessi sama ódýra Ikea verðlagning heldur meira eins og íslensk, en samt sem áður keyptum við okkur smá, bara upp á að fá smá "íslenskt bragð", við fengum okkur lefsur og hringlaga hrökkbrauð. Þar var líka graflax og graflaxsósa og síld í krukkum, sem voru mjög freistandi, en það var heldur dýrt svo við slepptum því. Við vorum í kapphlaupi við tímann en fengum okkur þó pylsu, eins og venja er þegar maður fer í Ikea. Að því loknu brunuðum við heim til að taka á móti gestunum.
Þegar þau voru komin ræddu þau mikið um þessar ferðir sem eru á boðstólum. Montserrat er gamalt munkaklaustur rétt fyrir utan Barcelona og það var ákveðið að fara í dagsferð þangað. Það á þó enn eftir að ákveða hvernig eigi að setja saman þann ferðapakka, hvað eigi að vera inni og hvað ekki, t.d. veitingastaður og safn því það gerir allt mun dýrara. Hins vegar er rætt um að fara í ferð yfir helgi og að leigja til þess húsnæði - casa rural. Ekki er búið að ákveða neitt þar og við erum ekki viss hvort við viljum vera með í því það verður að öllum líkindum of dýrt fyrir okkur. Það nefnilega fleira sem okkur langar að gera eins og t.d. að fara til Lindu og Beggó og að fara hugsanlega til Gígju ef hún verður "beisuð" í París.
Eftir að þau voru farin skiluðum við DVD og reyndum að segja vídeóleigumanninum á einhverri hrognaspænsku að önnur myndin sem við vorum að skila væri gölluð þar sem við gátum ekki séð endinn. Það tókst, þ.e. hann skildi það en reyndi samt að segja okkur að merkið á DVD spilaranum, LG, væri lélegt og að það væri þess vegna. Við hlustuðum náttúrulega ekkert á það og fengum að lokum að taka aðra DVD mynd. Við höfðum verið að velta fyrir okkur hvort við ættum að fara á discotek en Mikko og Hannele voru frekar löt og við líka þannig að við enduðum bara heima þetta kvöldið (þó skammarlegt sé).