14. febrúar 2003


Dagbókarfærslan verður ekki löng í dag, því miður og er bara ein skýring á því.... Í allan dag höfum við legið í bólinu, hva það er nú Valentínusardagurinn. Enn og aftur því miður, ástæðan fyrir legunni voru veikindi. Þetta er sem sagt búinn að vera dauðasti dagurinn okkar síðan við komum hingað til Spánar. Sem betur fer var enginn skóli í dag en við vorum búin að plana að gera eitthvað í kvöld.

Gerðum heiðarlega tilraun til að leigja okkur DVD sem tók nú sinn tíma þar sem við þurftum að sýna passa og reikning til að fá að leigja spólu. Eftir mikla fyrirhöfn náðum við þó að leigja (gaurinn á videoleigunni talar enga ensku). Svo þegar við komum heim, alsæl með að hafa eitthvað fyrir stafni í kvöld þá er ekki hugbúnaður á tölvunni til að horfa á myndina. Lukkan er sem sagt ekki að leika við okkur frekar en fyrri daginn :) Redduðum þessu samt með því að horfa á hið magnaða spænska sjónvarp, "dubbað" og yndislegt.

Ekki misskilja, það er fínt að vera einn dag svona inni, sérstaklega þegar það er mjög kalt úti. Nýttum líka slatta tíma í að læra spænskar sagnir og sagnabeygingar svo dagurinn fór nú ekki alveg fyrir lítið.

Vonum nú að heilsan verði skárri á morgun því þá er margt að gerast. Klukkan 5 er skrúðganga til að mótmæla "verðandi" stríði við Írak. Um kvöldið er okkur svo boðið í fordrykk fyrir þorrablót Íslendingafélagsins en skráning í það var víst fyrir einhverjum vikum svo við erum ekki að fara á blótið sjálft. Gaman samt að kíkja í fordrykkinn og tala kannski við fólk á einhverju öðru en hrognamáli :)

Svona í lokin þá verðum við að minnast á að leigjandinn okkar virðist ekkert fúl út í okkur fyrir að vera að fara, vonum að hún hafi ekki misskilið okkur í gær.