(Jueves) Fimmtudagurinn, 13. mars 2003
Byrjuðum daginn á að fara í skólann snemma til að geta sett inn myndir á vefinn og dagbókarfærslur. Við mættum klukkutíma áður en skólinn byrjaði mjög fegin að geta gert þetta í skólanum frítt í stað þess að þurfa að fara á internetcafé og borga. En tengingin við internetið þarna er mjög hæg svo eftir tímann þurftum við að fara aftur að klára.
Þegar við komum aftur eftir tímann nappaði okkur e-r feitur spænskur karl sem bablaði e-ð á spænsku, til skiptis hálf öskrandi og svo brosandi á milli. Við vissum ekki alveg hvort hann væri reiður eða hvort hann væri að reyna að vera kammó, fyndinn eða bara plein leiðinlegur. Við skildum þó að hann var að segja okkur að við værum ekki í bókasafnsfræði, að hann hafði verið að fylgjast með okkur og hann þekkti okkur ekki, þannig að við hefðum engan rétt á að vera þarna í þessari tölvustofu. Okkur til mikilla vonbrigða er þessi tölvustofa sem við fundum aðeins fyrir bókasafnsfræðinema. Við megum fara í tölvunar á bókasafninu en þær eru mun færri auk þess sem það sitja fleiri um þær sem gerir okkur erfiðara um vik að uppfæra síðuna okkar.
Við fengum hringingu frá Ívari í gær og hann bauð okkur í grill heim til Ólafs Helga og Lindu kærustu hans um kvöldið. Ívar og Eyrún kærasta hans eru komin aftur til Barcelona eftir að hafa farið heim til Íslands í viku til að redda sínum málum eftir þjófnaðinn sem þau lentu í um daginn. Þau bjuggu með Ólafi Helga og Lindu kærustu hans í slæmu hverfi í borginni eru nú flutt rétt fyrir utan hana til Castelldefels sem er mun öruggari staður. Íbúðin þeirra Ívars og Eyrúnar er með risa svalir sem snúa að ströndinni. Í garðinum beint beint fyrir neðan svalirnar er tennisvöllur og sundlaug og svo beint utan garðinn er ströndin. Ólafur og Linda eru með aðeins stærri íbúð, með stórum svölum og svo er allt þakið yfir íbúðinni svalir líka. Þeirra íbúð liggur líka upp að ströndinni og er ca. 4 mín ganga til Ívars og Eyrúnar.
Um kvöldið sótti Ívar okkur svo og við fórum heim til Óla. Það er allt annar fílingur að vera þarna heldur en inni í borginni, maður hefur á tilfinningunni að maður sé kominn til Benidorm eða eitthvað slíkt, enda er þetta bara strandarbær. Við grilluðum uppi á þaki, með ströndina við hliðina og hljóðið í briminu og himinninn var stjörnubjartur. Á meðan við grilluðum sötruðum við bjór og rauðvín. Við fengum grillað svínakjöt og bakaðar kartöflur með sýrðum rjóma og hvítlauk o.fl. tilheyrandi - týpískur íslenskur grillmatur - sem var snilld!! Einn sá besti matur sem við höfum fengið síðan við komum til Spánar. Þarna var saman komið allt það besta frá Spáni og Íslandi á einum stað, gat ekki verið betra. Þetta var mjög vel heppnað og við skemmtum okkur frábærlega. Ólafur og Ívar voru í góðum fíling með Chilli Peppers og Sálina í botni.
Að þessu loknu fórum við heim til Ívars og Eyrúnar og sváfum þar vegna þess að það er frekar langt heim og dýrt að taka leigubíl. Þau hafa 2 gestaherbergi svo þau geta tekið við gestum.
Það er nokkuð ljóst að við eigum eftir að krassa inn á þau reglulega í sumar ;)