13. febrúar 2003


Jæja, fyrsti dagurinn í skólanum ...

Fórum á fætur fyrir kl. 6 þegar Dóra fór fram úr að ná sér í mjólkurglas og brauðsneið til að skola niður verkjatöflunum sínum, en þetta var mjög erfið nótt hjá henni. Hún er komin með kvef - mikinn hósta. Einnig á hún mjög erfitt með svefn vegna umferðarinnar hér fyrir utan og hrotum í karlinum í næstu íbúð ...

Þetta var ekki besti dagurinn okkar í Barcelona. Það var rigning úti í allan dag og mjög kalt og Dóra orðin hálf slöpp. Við áttum að mæta niður í háskóla kl. 9 til að fá úr því skorið í hvaða bekk við myndum lenda. Í Metró-inu tók Dóra eina góða fellu í rúllustiganum þegar hún þaut niður sleypan stigann á 20 km hraða (10 stig). Enginn slasaðist sem betur fer - kannski smá marblettir hér og þar.

Það kom okkur mikið að óvörum að við féllum á prófinu í gær - bæði tvö - og lentum á leveli fyrir byrjendur! Þvílík vonbrigði. Það gladdi okkur þó að við erum jafn léleg í spænsku og við erum saman í bekk. Stundataflan er mjög góð - fyrir þá sem vilja vita þá erum við á mánudögum og þriðjudögum frá 9-12 og á miðvikudögum og fimmtudögum frá 10:30-12.

Bekkurinn er blandaður, 6 Kanar, 3 Íslendingar (við og Eyjo aka Sesar-A), Kínverji, Pólverji, Filipseyingur, Írani og Svíi. Allir í bekknum nema við og Pólverjinn hafa tekið einhverja spænsku áður.

Eftir skóla fórum út í rigninguna og kuldann, stoppuðum aðeins í súpermarkaðinum til að kaupa helstu nauðsynjar og svo heim að sofa því þetta var svefnlaus nótt.

Klukkan 18 fórum við svo og hittum okkar tilvonandi leigusala (eða umboðsmenn þeirra: Miguel og Theresa) upp í skóla til að láta þá hafa afrit af pössunum okkar - það er gert hér til að búa til leigusamninga. Þau eru ferlega fín og öll af vilja gerð og hafa veitt okkur margvíslegar gagnlegar upplýsingar, s.s. hvernig eigi að fara í kringum reglurnar ;) (Hvernig við getum verið á netinu uppi í skóla frítt í 3 tíma í stað þess að vera 1). Því næst stoppuðum við aðeins í El Corte Inglés og keyptum í kvöldmatinn (kjúklingabringur á 2 €!! (ca. 170 kr. Íslenskar) og reyndum svo að útskýra fyrir Isabellu (sú sem leigir okkur) að við hefðum ekki keypt fyrir alla. Við höldum að hún hafi verið smá móðguð.

Dóra sagði við Isabellu í gær að hún svæfi illa út af umferðinni. Eftir kvöldmat áðan kom hún til okkar og sagðist hún vilja skipta um herbergi við okkur svo Dóra gæti sofið betur, sem var mjög almennilegt af henni. Þá tókst okkur að móðga hana ennþá meira því við sögðum henni að við hefðum fundið okkur annan stað sem við flytjum á næstu mánaðarmót. Það er búið að vera svolítið vandræðalegt síðan þá. Við útskýrðum þetta á mjög penan hátt, hin íbúðin er nær skólanum og er tæpum 150 € ódýrari á mánuði. Vonandi erfir hún þetta ekki við okkur, en við erum búin að skynja smá fýlu í henni síðan.

Jæja, þá er það markmið kvöldsins: læra fimm sagnir áður en við förum að sofa.

Hasta luego.