12.febrúar 2003


Þetta er búinn að vera fínn dagur. Byrjuðum á því að fara niður í skóla til að taka próf sem raðar okkur í bekki - vonandi lendum við saman í bekk, a.m.k. á sama tíma. Niðurstöðurnar koma kl. 9 í fyrramálið, en við verðum þokkalega í neðsta level-inu þar sem við svöruðum bara 3 spurningum af 100 og það er alls ekki víst að svörin hafi verið rétt. Eins og illar skiluðum við prófinu eftir 10 mínútur, þá búin að góna út í loftið í svona 7. Þegar við fórum svo upp á skrifstofuna eftir prófið hittum við þar íslenskan strák, Björgvin, sem líka er að fara í prógrammið sem við erum að fara í. Þá komumst við líka að því að það eru að mig minnir 7 Íslendingar að fara í spænskunám við skólann, vonandi lendum við samt á mismunandi level-um. Verðum a.m.k. að passa okkur að tala ekki of mikla íslensku. Eftir þetta stórmerkilega próf fórum við svo á röltið með Björgvini niður á Römblu og einhverjar hliðargötur. Enduðum inni á kaffihúsi til að spjalla smá.

Enn einu sinni fengum við staðfestingu á því að það er verið að rýja okkur inn að skinni þar sem við búum. Núna erum við að borga 490 Evrur fyrir herbergið og þeir sem við tölum við góna bara á okkur og skilja ekkert í þessu. Því fórum við aftur í dag í íbúðarleit, þ.e. eftir að hafa farið og fengið okkur símanúmer. Að þessu sinni skilaði íbúðarleitin árangri og við hittum strák og gamla konu og fórum með þeim að skoða íbúð. Þar búa nú þegar tveir Finnar, sem eru í hagfræðinámi og einn Frakki. Íbúðin var hreint út sagt stórkostleg miðað við það sem við höfum séð hérna hingað til. Allt hreint og fínt og meira að segja sér þvottaherbergi. Eina sem kannski er svolítið skrítið er að við munum sofa í koju :), kannski við leyfum Grétu að hoppa upp í til Dóru þegar hún kemur í heimsókn :þ Leigan er líka 140 Evrum lægri á mánuði og þess vegna (eftir þó nokkra umhugsun) ákváðum við að skella okkur á þá íbúð, en við flytjum ekki inn fyrr en í byrjun mars. Ókosturinn við hana er að hún er ekki í gamla bænum eins og sú sem við erum í núna og þar af leiðandi er lengra að sækja öll kaffihús og svona. Gönguleiðin í skólann er samt styttri samkvæmt nýjustu útreikningum. En hvað, það er ekki eins og við getum ekki farið í hverfin þar sem gömlu húsin eru. Við eigum nú eftir að sakna þess að labba brúna "okkar" því útsýnið frá henni er svo frábært. Það verður nú smá erfitt að segja Isabel og Javier frá því að við viljum ekki búa lengur með þeim en hva, við sömdum bara um einn mánuð í reynslutíma svo þau geta nú ekki orðið fúl :S

Í dag höfum við líka gengið rosalega mikið, eins og flesta daga hér. Gangan í dag fólst þó helst í því að leita að mexíkönskum veitingastað sem við virðumst ekki ætla að finna. Eftir mikla leit fengum við okkur Falafel (kebab) sem var rosa ódýrt og gott :) Viti menn, fljótlega eftir að við vorum búin að borða blasti við okkur mexíkanskur staður, týpískt.

Núna er það næsta skref að mana sig upp í að segja Isabel að við ætlum að flytja út frá henni. Við vitum ekki alveg hvernig hún á eftir að taka því þar sem hún er frekar stjórnsöm týpa (rústaði t.d. símasnúrunni svo við kæmumst ekki á netið og eignar sér hlutina okkar) en hún hlýtur að komast yfir það. Við sjáum meira eftir Javier sem er algert ljúfmenni. Lætur Isabel reyndar alveg vaða yfir sig en við kunnum rosalega vel við hann.