11.febrúar 2003


Þá erum við búin að vera í Barcelona í næstum viku og erum að njóta þess alveg í tætlur. Veðrið er búið að vera gott (á okkar mælikvarða) og það er ágætis tilbreyting frá kuldanum heima. Síðustu daga höfum við líka verið dugleg við að njóta útiverunnar og erum búin að ganga af okkur lappirnar. Skrítið hvað maður miklar ekkert fyrir sér að ganga í svona nýrri borg þegar maður nennti varla út í búð heima. Síðustu 3 dagar hafa farið í göngur frá morgni til kvölds og við gleymum meira að segja að borða.

Það er nú samt margt annað sem er nýtt fyrir okkur hér í Barcelona. Íbúðin sem við búum í er til að mynda alls ekki eins og við erum vön. Hún virðist alveg prýðisfín á myndunum sem við settum á vefinn en í raun er hún frekar sóðaleg. Baðherbergið er sóðalegra en nokkurt almenningssalerni sem við höfum séð, eldhúsið er ótrúlegt, við þurfum að vaska upp allt áður en við notum það þar sem það eru matarleyfar og drasl í öllu. Við tókum nú samt upp á því að ljúga að hreingerningar væru eitt af áhugamálum Dóru og þar af leiðandi er hún svolítið búin að vera með tuskuna á lofti (vitum nú ekki hvernig hinum finnst það) en við sjáum enga aðra leið til þess að gera þetta mönnum bjóðandi.

Vegna ástandsins með íbúðina og mjög hárrar leigu þá erum við búin að vera að leita að öðrum samastað. Uppi í háskóla hanga uppi auglýsingar á töflum veggjunum eftir bæði nemendur og þá sem leigja út íbúðir. Við fórum þangað í dag til að kíkja á þær og fundum nokkrar, þar á meðal var eitt par sem var að leita að leigendum í herbergi í íbúðinni sinni - konan finnsk en karlinn indverskur. Við fórum að skoða, en íbúðin er mjög nálægt háskólanum. Okkur leist ekkert rosa vel á hverfið þegar við komum en ákváðum samt að kíkja. Á móti okkur tók svo indverjinn brá honum mikið við að sjá okkur því við vorum víst "bara venjulegt fólk!", en hann bjóst víst við e-m eskimóum með ísbjörn í bandi ... Þar sem okkur leist ekkert svaka vel á hverfið spurðum við hann hvernig það væri en hann sagði okkur þá hann hafi "aldrei vitað til þess að fólk hefði verið rænt nákvæmlega í þessari götu!!". Ég held ég hafi alrei séð jafn mikið af drasli komið fyrir á jafn litlu svæði, nema þá helst í bílskúrnum heima. Herbergið sem við áttum að fá var engin undantekning en við vorum svo heppin að það fylgdi því sjónvarp, 12", svart/hvítt og rúmið var ca. 300 ára gamalt og gormarnir stóðu upp úr. Við ætlum ekki að flytja þangað - þó þau vildu endilega fá okkur (því við erum svo "venjuleg"). Eftir þessa skoðunarferð fórum við bara aftur upp í skóla að leita að fleiri auglýsingum. Til okkar kom spænsk kona sem tók eftir því að við vorum að skoða "auglýsinguna hennar" (en það eru ekki nema 200 auglýsingar hangandi uppi á hverri töflu). Hún bauð okkur far til að skoða íbúðina sem hún hefur fram að bjóða. Bílferðin var dálítið forvitnileg því spánverjar keyra á 60-80 km. hraða á fjölförnum göngugötum og eru ekkert að virða gangandi vegfarendur né umferðarreglur - þá sérstaklega umferðarljós. Þegar við komum í götuna sem húsið er í fann hún ekki stæði strax og bakkaði því bara til baka á einstefnugötu! Svo fann hún stæði og bakkaði bara inn í bílinn fyrir aftan eins og ekkert væri. Íbúðin var frekar fín nema lítil eldunaraðstaða og líka frekar dýr. Við fengum far með konunni aftur upp í háskóla og þegar við fórum út úr stæðinu klessti hún bara inn í hornið á bílnum fyrir framan, sagði ekki "upps" eða neitt heldur var þetta sjálfsagðast í heimi. Við fengum sem sagt staðfestingu á því að Spánverjar eru verstu bílstjórar sem við höfum séð.

Við erum í svolitlum vandræðum að fá íbúð hérna því flestir leigjendur vilja fá fólk inn STRAX en við erum búin að borga leigu fyrir allan febrúar þar sem við erum og þ.a.l. getum við ekki fengið þessa íbúð. Því spurðum við hana bara ráða. Hún tjáði okkur að hvar sem við leigðum ættum við ekki að fara inn í hverfi sem heitir Raval því það er upp fullt af fátækum innflytjendum - aröbum og glæpamönnum. Herbergið sem við skoðuðum fyrr um daginn var einmitt í þessu hverfi og gatan sem íbúðin er í hlýtur því að vera sú eina í öllu hverfinu sem þjófarnir halda sig frá!

Við erum líka mjög undrandi á öllu pappírsflóðinu hérna. Við fórum í bankann í dag til að stofna bankareikning sem er nú ekki frá sögum færandi nema það tók okkur aðeins einn og hálfan tíma. Ekki aðeins voru tungumálaörðuleikar (öðrum orðum málleysi) að seinka fyrir okkur heldur þurftum við líka að skrifa undir svo mikið af pappír að það var engu lagi líkt. Við skyldum náttúrulega ekkert hvað við vorum að skrifa undir en vonum að við fáum debetkort í næstu viku. Tungumálaörðugleikarnir eru nú samt ekki bara að seinka fyrir okkur í bönkum heldur erum við alveg eins og ég veit ekki hvað. Það talar eiginlega enginn ensku og þeir sem tala eitthvað tala bara örlítið. Við vonumst nú samt til að vera farin að skilja eitthvað aðeins meira eftir nokkra tíma í skólanum. Það er samt ótrúlegt hvað smá frasar eru fljótir að koma. "Vale" er t.d. mest notaði frasinn hérna enda þýðir það OK.

Á morgun förum við í skólann og tökum stöðupróf í spænsku. Vitum ekki alveg hvað við eigum að gera í því þar sem við kunnum ekki neitt en ætli það endi ekki með að við skilum bara auðu. Fínt að prófa að skila bara auðu á prófi svona einu sinni :)

Annars er allt rosa fínt að frétta af okkur...