10.desember
|
Gaman, gaman, gaman, gaman, gaman... Núna erum við þokkalega búin að slá margar flugur í einu höggi. Við erum búin að kaupa jólagjafir handa hvoru öðru og kaupa okkur flugfar til London 6.febrúar. Og mesta snilldin er að þetta er einn og sami hluturinn. Flugleiðir voru svo elskulegir að hafa jólapakkatilboð á helgarferðum akkúrat þegar við þurftum á ódýrara flugfargjaldi að halda. Vá hvað farþegunum á eftir að bregða í brún þegar við mætum ekki í flugið heim á sunnudeginum. Við erum sem sagt aldeilis komin í ferðaskapið og erum að reyna að gera allt rétt áður en við förum út. Á tékklistanum er að fá sér tryggingu, tala við trygginastofnun útaf formsatriðum, tékka á ferðastyrk hjá VR og svo mætti lengi telja. Ef einhverjir hafa góð ráð handa okkur þá eru þau auðvitað mjög vel þegin. Þessa stundina erum við samt önnum kafin við aðra hluti en ferðaundirbúning. Jólin nálgast óðfluga og þar af leiðandi eru próf í skólanum og iðandi jólakortagerð í gangi. Svo er aldrei að vita hvort skellt verði í einhverjar sortir af smákökum, kemur í ljós. Jæja, bless í bili kæra dagbók, heyrumst síðar |
|