(Domingo) Sunnudagurinn, 1 de junio de 2003
Halló allir saman...
Jæja, smá samantekt fyrir þá sem hafa ekkert fengið að heyra frá okkur undanfarið. Á fimmtudaginn komu Úlfur og Alda í heimsók (þau eru vinir okkar úr HR) og þau verða hér til næsta fimmtudags. Við erum búin að vera dugleg að taka túristapakkann og kynna þau fyrir brjáluðu Íslendingunum í Castelldefels.
Planið fyrir sumarið:
Fimmtudagur 5. júní: Alda og Úlfur fara aftur heim til Dundee
Laugardagur 7. júní: Gréta litla kemur í heimsókn til Barcelona
Laugardagur 14. júní Gréta litla fer heim til Íslands
Miðvikudagur 18. júní: Við förum til Genfar til Lindu systur og hittum þar alla familíuna
Fimmtudagur 26. júní: Komum aftur til Barcelona
Þriðjudagur 5 ágúst: Förum til Kaupmannahafnar (millilendum í Belgíu í 4 tíma)
Miðvikudagur 6. ágúst: Förum til Guðfinnu systur og Helge í Bergen
Fimmtudagur 14. ágúst: Förum til Köben aftur og gistum hjá Auði Sverrisdóttur
Sunnudagur 17. ágúst: Förum til Íslands ... ví, ví ... gaman gaman
Annars er allt gott að frétta. Í gær fórum við öll til Ívars og Eyrúnar í Castelldefels. Alda mamma Íbba er í heimsókn. Við tókum gott grill saman, reyndar mættum við frekar seint, vorum komin um 20:30 og þá átti eftir að fara í búðina. Strákarnir tóku þetta ábyrgðarfulla hlutverk að sér og meira að segja án þess að hafa með sér tossalistann. Auðvitað getur alltaf eitthvað gleymst og í þessu tilfelli voru það kartöflunar - grundvallaruppistaðan í allri máltíðinni. Því var ekkert annað að gera en að bruna af stað aftur og þegar þeir loksins komust á staðinn var búið að loka. Þetta reddaðist þó, gefum Spánverjum stóran plús í kladdann fyrir að selja kartöflur í nætursölu á bensínstöð (ekki myndi ég halda að Select bjóði upp á svo gott heima á Íslandi!). Við gátum loksins farið að borða þegar klukkan var orðin 12 á miðnætti en maturinn var svo góður að það skipti engu máli. Hann var svo góður, að Úlfur sagði ekki eitt orð við matarborðið því hann var svo einbeittur að því að njóta góða bragðsins.
Við vorum dæmd til að taka vel á því þetta kvöld því við gátum ekki gist í Castelldefels (vegna þess að mamma Ívars er í heimsókn og aukadínurnar eru allar í láni - meira að segja er ein heima hjá okkur ...) og fyrsta mögulega lest til baka kemur ekki fyrr en 7 um morguninn. Þetta var gott kvöld, allir skemmtu sér stórvel og strákarnir tóku sér tvisvar sinnum góðar dýfur í sjóinn - fyrst um nóttina og svo aftur þegar morgunsólin var komin á loft. Verra var þó að með öllum öskrunum og látunum (sem voru tilkomin vegna kuldans og sjokksins við að hlaupa um í köldum sjónum) hræddu þeir væntanlega fiskana sem aumingja Spánverjarnir voru að reyna að veiða.
Klukkan 7 var svo lestin tekin til Barcelona og um 8 leitið gátu þreyttir farið í háttinn. Við vöknuðum aftur um kl. 13 og var þá stefnan tekin á Ciutadella, sem er garður hér í Barclona. Þar var mikið að gerast, fólk að spila á bongótrommur og seljandi ýmsa hluti. Það var mikið um að fólk væri þar með heimatilbúinn mat, eins og samlokur og kökur til að selja svöngum garðunnendum. (Við höfum fengið áreiðanlegar heimildir fyrir því að ekki sé allt innihaldið í kökunum endilega lögleg efni ...). Þetta er yndislegur staður til að vera á á björtum sumardegi eins og dagurinn í dag var. Þarna er alltaf mikið líf á sunnudögum. Næst löbbuðum við á Römbluna, þar voru margir básar með varningi til sölu. Við fórum svo á Hard Rock Café og eftir það skelltum við okkur á Plaza Espana. Þar er á kvöldin kl. 21:30 rosalega flott gosbrunnasýning. Við sátum þar og horfðum á gosbrunnana dansa undir tónlist á meðan þeir skiptu sífellt um liti í þvílíkri ljósadýrð. Þetta var frábær upplifun og góður endir á góðum degi.