(Jueves) Verkalýðsdagurinn, fimmtudagurinn 1. maí 2003!!!
Finnarnir fengu í gær til sín fólk í heimsókn í enn eitt skiptið, nú eru það vinur Mikkos og kærastan hans (Við munum ekki hvað þau heita - bæði skrítin finnsk nöfn).
Það er víst venja að fara út á djammið daginn fyrir verkalýðsdaginn og að sjálfsögðu vorum við ekki minni menn! Enda er ein ensk lumma sem segir "When in Rome, do as the Romans do".
Í gærkvöld fórum við að hitta Castelldefels grúppuna auk Óla Jörgen (vin Óla Helga og Ívars sem er í heimsókn hjá þeim núna) og Hemma (sem er bróðir Lindu kærustu Óla Helga) niðri við ströndina hér í Barcelona, en þar voru margir skólar búnir að setja upp tjaldbúðir í ferðatívolíi sem er hér í bæ. Við vitum reyndar ekki alveg hver tilgangurinn var, væntanlega einhver liður í að þjappa fólki saman og kynna skólana í leiðinni. Það var ekki alveg laust við að það væri smá "þjóðhátíðar í Eyjum fílingur" þarna, nema að tjöldin voru aðeins stærri og spænskir dansar voru við lýði. Eftir góða kvöldstund í tívolíinu var ákveðið að halda til Castelldefels og að við skötuhjúin myndum gista heima hjá Ívari og Eyrúnu. Ívar og Ægir skelltu sér í sjóinn svona rétt til að hressa sig við og svo var fljótlega farið að sofa.
Við vorum svo "heppin" að næla okkur í samtals 6 nýjar moskítóstungur þessa nóttina, Ægir 4 og Dóra 2. Þegar við vöknuðum var sólin skínandi og mikill hiti, allir voru enn sofandi svo við ákváðum að skella okkur á ströndina. Reyndar höfðum við engin sundföt en létum það nú ekkert á okkur fá, Ægir fór bara úr öllu nema boxerunum og skellti sér í sjóinn. Þegar við höfðum baðað okkur í sólinni í góðan tíma og orðið ágætlega brennd fórum við svo aftur heim til Ívars en enginn svaraði bjöllunni svo við héldum að þau hefðu farið heim til Óla Helga og Lindu. Því var ekkert annað að gera en að rölta til þeirra, nærbuxurnar hans Ægis voru ekki enn þurrar eftir sjóinn svo hann þrammaði bara á nærunum í gegnum hálfan bæinn. Ekki fundum við þó Ívar, Eyrúnu og Jörgen en Óli Helgi og Hemmi voru að gera sig tilbúna fyrir bíltúr til Sitges, sem er vinsæll ferðamannastaður við ströndina - þó aðallega hjá samkynhneigðu fólki ... Þetta er mjög sætur og snyrtilegur staður. Við löbbuðum með ströndinni og enduðum á kaffihúsi. Það var kominn kvöldmatartími þegar við snérum loks aftur til Castelldefels og við skötuhjúin fórum aftur heim til Ívars, en við höfðum skilið allt draslið okkar eftir þar þegar við fórum á stöndina. Þau könnuðust ekkert við að við höfðum hringt bjöllunni þarna fyrr um daginn, enda höfðu þau ekki farið út úr húsi, svo að við höfðum þá væntanlega hringt vitlausri bjöllu. Við sátum hjá þeim og spjölluðum í smá stund og röltum svo með Óla Jörgen á kínverskan stað, en Eyrún og Ívar urðu eftir heima. Þegar við löbbuðum aftur heim sóttum við bílinn hans Ívars til Ólafs Helga - þar sem reyndi á hvort ökuhæfni Ægis væri enn til staðar - en svo keyrði Ívar okkur aftur til Barcelona.
Þegar heim var komið um 12 leytið sátu Finnarnir hér saman og sötruðu vín með matnum sínum (þau borða oft í seinni kantinum). Formúlan byrjar á morgun, föstudag og verður fram á sunnudag og þau voru að gera sig tilbúin fyrir hana. Þau voru lítið farin að sakna okkar og höfðu varla tekið eftir að við værum farin - en við létum ekkert vita af okkur og búin að vera í burtu í rúman sólarhring. Þau keyptu sér einnig digital myndavél í gær, Canon A70 (okkar er A30) og við hjálpuðum þeim að tengja hana tölvunni til að fá myndirnar. Að þessu öllu loknu fórum við svo að sofa, úrvinda af þreytu enda búinn að vera langur og viðburðaríkur dagur.